Þakkir

Þegar ég settist niður í gærmorgunn að skrifa bloggið bjóst ég alls ekki við svona miklum og jákvæðum viðbrögðum. Ég var viðbúin að vera úthúðuð og sökuð um athyglissýki, en sem betur fer fór ekki svo. Öll þessi jákvæðu viðbrögð bæði hér inni á blogginu, á facebook og frá fólki úti í bæ sýnir bara að fólki er sko alls ekki sama um náungann. Svo hef ég líka tekið eftir að fólk er að segja frá eigin reynslu af einelti og losa sig þannig við smá af þeim bagga sem fylgir okkur alla ævi sem höfum lent í þessu.

Ein móðir hringdi í mig í gær, alveg í sjokki. Hana hafði grunað að eitthvað væri í gangi, en að það væri svona slæmt gat engan grunað. Seinna um daginn kom dóttir hennar og önnur stelpa og báðust afsökunar á hegðun sinni. Ágústa mín ljómaði öll þegar hún fór að sofa í gærkvöldi og sagði við mig :"Mamma, nú á ég tvær vinkonur."

Ég hafði samband við skólann í morgun, þá voru stjórnendur þar búnir að lesa bloggið og allt komið í gang að hjálpa stelpunni minni. Kærar þakkir fyrir það.

Í dag kom brosandi stelpa inn í bílinn minn þegar ég sótti hana í skólann. Við fórum upp í hesthús, en hennar yndi eru hestar, og fékk hún að fara í útreiðartúr með eigandanum. Henni fannst æðisleg lykt af sér þegar hún kom heim, í mínu nefi er það bara hestafýla en hjá henni er þetta eins og ilmvatn. :) Síðan fór hún að leika við vinkonur sínar og svo á píanóæfingu og spilaði tvö lög á tónfundi. Núna er hún að leika við frænda sinn sem er árinu eldri en hún og hefur alltaf verið góður við hana, enda á bróðir minn yndisleg börn.

Ég veit vel að þetta er bara byrjunin, en vonandi fer þetta að breytast smátt og smátt og hún verður aftur þessi glaða og yndislega stelpa sem hún hefur alltaf verið, þangað til í haust þegar vandræðin byrjuðu.

Ágústa er ekki eina barnið mitt sem hefur lent í einelti. Stjúpsonurinn og elsta dóttirin lentu í skelfilegu einelti í skólanum og var tekið á þeim málum með misjöfnum árangri, en það var allt öðruvísi. Ég flokka það þannig, að þau lentu í háværu einelti, en þetta einelti Ágústa er búin að ganga í gegnum er þögult. Ég veit ekki hvort að þið skiljið þetta, en þetta "meikar sense" (svo að ég sletti aðeins) fyrir mér.

Enn og aftur takk fyrir jákvæð viðbrögð.

TAKK :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott mál Matthilda mín, ég hafði reyndar grun um að svona færi. Það er alltaf gott að taka á málinu og standa með sínum.  Fólk er gott inn við beinið og stundum þarf að ýta við og slá á rétta strengi.  Eins og ég sagði við þig þá er ekki lausnin að flýja heldur reyna að laga ástandið þar sem það á sér stað. Innilega til hamingju með þetta skref.  Nú væri líka tækifæri til að bjóða vinkonunum og jafnvel fleirum í smáveislu pönnsur og skemmtilegheit. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.2.2012 kl. 20:27

2 identicon

Knús í hús :)

Telma (IP-tala skráð) 1.3.2012 kl. 08:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Höfundur

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
Móðir, eiginkona, verkakona og handavinnu- og föndurkona
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2012 2013 335
  • 2012 2013 336
  • 2012 2013 337
  • 2012 2013 338
  • 2012 2013 340

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 106508

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband